Við munum senda þér tölvupóst til að endurstilla lykilorðið þitt.
EFTIR VEÐRI
EFTIR VEÐRI
Vokey SM10 Oil Can Limited Edition - Forpöntun!
Vokey kynnir til leiks SM10 Oil Can fleygjárn í takmörkuðu magni. Hér getur þú tryggt þér eintak.
Í forpöntuninni er hægt að velja allar þær "grindur" og "bounce" sem í boði er hjá Vokey.
Hægt er að velja um nokkur sköft, mismunandi stífleika, styttri eða lengri sköft og breytta legu, nokkur grip, þar á meðal sérstakt Vokey Oil Can grip.
Formlegur söludagur er 27/3/25 og verða engar pantanir afgreiddar fyrir þann tíma.
Gera má ráð fyrir að sérpöntunin taki um það bil 3 vikur að koma til landsins.
Við höfum samband við þig í gegnum tölvupóst þegar þú ert búinn að velja fleygjárnið/fleygjárnin þín og staðfesta og greiða pöntunina hér og klárum dæmið með þér.
Það sem kylfingar munu sjá og upplifa með nýju SM10 fleygjárnunum er að boltinn mun fljúga lægra og með meiri spuna en áður á hærri gráðunum.
Hönnun SM10 raufanna má skipta í tvo hluta, (1) lágar gráður (46°-54°) eru hannaðar þannig að þær eru mjórri og eru skornar aðeins dýpri á meðan (2) hærri gráðurnar (56°-62°) eru örlítið víðari og ekki eins djúpar.
Meira tungsten er sett í tánna á SM10 til að minnka líkurnar á að kylfan lokist í gegnum höggið og minnkar þar með líkurnar á að kylfingur dragi höggið.
Gott er að hafa í huga að æskilegt er að hafa ekki meira en 4°-6° bil á milli fleygjárna.
Eitt af því sem skiptir hvað mestu máli í vali á fleygjárnum er svokölluð GRIND eða botninn á hausnum. Í heildina eru 6 mismunandi GRIND á SM10 fleygjárnunum :
F GRIND
M GRIND
S GRIND
D GRIND
T GRIND
K GRIND
Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja vefinn samþykkir þú skilmála um vefkökur.