Jólagjafahandbókin 2024

 

 

 

Hér er að finna virkilega góðar gjafahugmyndir fyrir kylfingana í þínu lífi sem við teljum nokkuð öruggt að slái í gegn. Listinn er alls ekki tæmandi, við bjóðum uppá einstakt vöruúrval frá fimm vörumerkjum sem eru hvert og eitt leiðandi á sínum sviðum.

Að því sögðu erum við virkilega spenntir að taka á móti ykkur í Síðumúla 33 í desember og veita ykkur góð ráð.  

Með því að smella á myndirnar opnast allar nánari upplýsingar um vörurnar og auðveldlega hægt að ganga frá kaupum um leið í vefverslun okkar.

 

 

Fyrir alla sem elska að fara erlendis í golfferðir - Jólagjöf ársins 2024

Motocaddy FlightSafe ferðacoverið er líklega okkar uppáhaldsvara í búðinni í dag. Ótrúlega flott, stöðugt og veglegt 6 hjóla cover sem pakkast einstaklega vel saman þegar það er ekki í notkun og sparar þannig mikið pláss í geymslu.

 

  

 

Fyrir hana

Macade Jogger eru langmest seldu buxurnar hjá okkur og fyrir löngu "heimsfrægar" á Íslandi. Ef þú vilt ekki klikka með mjúkum pakka þá eru þessar málið! Fimm litir í boði.


 

 

Meira fyrir hana

Macade kjólarnir eru bæði flottir og þæginlegir, við setjum hér mynd af Lana Dress, en í raun er það þannig að allar Macade dömuvörurnar eru frábærar og mjög líklegar til að slá í gegn.

 

 

Fyrir kylfinginn sem er alltaf að giska hvað er langt eftir 

Motocaddy PRO 3000 Laser Rangefinder er alvöru fjarlægðarmælir frá merki í fremstu röð. Snöggur, nákvæmur og einfaldur í notkun. Hér er á ferðinni fjarlægðarmælir sem stenst allar kröfur og meira til og á frábæru verði!

Fyrir hann

Nýji hálferma vindjakkinn frá Macade er mjög líklegur til vinsælda. Hálfrenndur með hettu, flott snið. Fæst í tveimur litum -  ótrúlega flott flík!

 

 

Fyrir þann herra sem að þú elskar mest

Hvað er betra en mjúkur pakki fyrir þann sem þú elskar mest? Okkar langvinsælasta herrapeysa er FJ 1/2 Zip Lined Vindpeysan. Gangi þér vel að finna betri mjúka gjöf en þessa :) Fæst í fimm litum.

 

 

 

Fyrir alla íslenska kylfinga

Er ekki hreinlega hægt að færa rök fyrir því eftir golfsumarið 2024 að góður regnjakki sé skyldueign fyrir alla íslenska kylfinga? FJ HydroLite X herrajakkinn og FJ HydroLite dömujakkinn eru léttir og frábærir regnjakkar.

 


 

  

Fyrir vandláta

Scotty Cameron pútterarnir eru þeir pútterar sem notaðir eru af flestum bestu kylfingum heims. Langmesta úrval landsins af Scotty Cameron finnur þú hjá okkur. Pottþétt jólagjöf.

 

 

Skyldueign í golfhermana

Fyrir alla sem eru að spila og æfa í golfhermunum í vetur! Titleist Pro V1 RCT golfboltarnir eru þróaðir til að auka nákvæmni í golfhöggum í Trackman innandyra. Langflestir golfhermar landsins eru Trackman hermar. Eftir að hafa prufað sjálfir þá getum við ekki hugsað okkur að fara aftur án þeirra. 

 

 

Fyrir afrekskylfinginn

Þau sem eru duglegust að æfa eiga auðvitað skilið alvöru tösku fyrir æfingaboltana, Titleist boltataskan er stílhrein og vegleg og á ófáum óskalistum hjá afrekskylfingunum okkar. Við eigum einnig til Titleist ProV1 Practice bolta sem smellpassa með í töskuna, nánari upplýsingar hjá okkur í Síðumúla 33.

 

Fyrir efnilega kylfinginn

Æfingavörurnar frá Perfect Practice eru notaðar af mörgum af bestu kylfingum heimsins. Púttspegill er líklega það golfæfingatæki sem flestir kylfinga nota til að æfa og bæta púttin. Pútthliðin hjálpa þér að verða nákvæmari og bjóða uppá margar sniðugar æfingar til að bæta púttin.

 

 

Fyrir nýjasta kylfinginn í fjölskyldunni

Motocaddy CUBE er með hæðarstillanlegt og veglegt "stýri" sem hentar jafnt stórum sem og nettum höndum. Pláss fyrir drykkinn,  flott hólf fyrir smáhluti, skorkortafesting og geymslunet þar undir. Einfalt að geyma auka bolta og tíí við hendina. Með fótbremsu. Frábær golfkerra á frábæru verði.

 

 

Fyrir hana í golfferðina

FJ Flex dömuskórnir eru algjörlega frábærir í golfferðina, flottir á fæti, léttir og þæginlegir skór sem lofta vel um sig. Líklega okkar vinsælustu dömuskór. 

Fyrir afa og ömmu

Afi og amma eru svo nægjusöm og örugglega búin að vera með sama golfpokann í 10 ár!

Léttir, vatnsheldir og virkilega vandaðir golfpokar frá Motocaddy á flottu verði! Fást í fjórum litasamsetningum.

 

 

Fyrir mömmu

Mamma er límið í fjölskyldunni og hún á allt það besta skilið, er ekki kominn tími á að mamma fái rafmagnsgolfkerru? Motocaddy M1 DHC er stílhrein, sportleg, einföld í notkun og glæsileg í alla staði. 

 

 

Fyrir pabba

Pabbi er stundum að pirrast hvað teighöggin eru að styttast hjá honum og það hefur áhrif á alla á heimilinu! Nýju Titleist GT driverarnir eru algjörlega geggjaðir og hjálpa pabba að ná fyrri styrk á golfvellinum.

Gerum vel við pabba í ár, hann á það skilið.

 

 

Fyrir strákinn og jafnvel fyrir tengdasoninn líka

Er eitthvað sem er skemmtilegra á golfvellinum en að fá alvöru bakspuna? Titleist Vokey SM10 eru í pokanum hjá mörgum af bestu kylfingum heims og eins og flestir vita, algjörlega frábær fleygjárn.

Frábært úrval í boði hjá okkur frá 46° uppí 62° 


 

Fyrir þau sem vilja verða betri í golfi

Við bjóðum uppá þrjár frábærar íslenskar golfkennslubækur hjá okkur.  

 

 

 

 

Fyrir hann/hana sem að þú spilaðir með í sumar og ætlar ekki að spila með aftur fyrr en bætingu er náð

Hjá okkur starfar einn allra fremsti golfkennari landsins, Nökkvi Gunnarsson. Að gefa tíma í golfkennslu hjá Nökkva er gjöf sem gefur, vertu því viðbúin/n að viðkomandi bæti sig verulega og gæti því aðeins blásið á móti næst þegar þið spilið saman.

 

 

Fyrir herra sem vilja bara það besta og flottasta

FJ Premiere Series golfskórnir eru einstakir golfskór sem hægt er að fá í mörgum flottum útfærslum. Hjá okkur er magnað úrval af Premiere Series og þessir hér að neðan, Harris Tweed eru þeir allra flottustu.

 

 

 

 

Frá jólasveininum

Það er fátt betra en að spila golf í nýjum sokkum. Nú auðvitað má líka nota sokkana meira en bara til þess að spila golf eins og svo margir viðskiptavinir okkar vita.

 

 

Við vonum að Jólagjafahandbókin nýtist ykkur vel. 

Við viljum vekja athygli á því að allar jólagjafir frá okkur hafa veglegan skilafrest eða til 24.janúar 2025. 

Það eru skemmtilegir tímar framundan í desember og við tökum vel á móti ykkur öllum í Síðumúla 33. Við leggjum okkur alla fram við að þjónusta landsbyggðina eins vel og við mögulega getum og við erum alltaf til taks í síma, í gegnum tölvupóst eða á samfélagsmiðlunum. 

Fylgið okkur endilega á INSTAGRAM og FACEBOOK

 

Gleðilega hátíð!