Vegna forsölu á Motocaddy rafmagnsgolfkerrum.
Okkur tókst því miður ekki að afhenda neinar kerrur í síðustu viku (1.-5.júní) eins og lagt var upp með. Skipið sem átti upphaflega að vera komið til landsins 25.maí, seinkaði um viku og við vitum að það kom í höfn 1.júní.
Því miður þá höfum við ekki fengið neinar kerrur ennþá í hús til okkar (í dag er 8/6) og við bíðum manna spenntastir eftir fréttum frá skipafélaginu.
Um leið og við fáum þetta í hús munum við að sjálfsögðu vinna dag og nótt að koma þeim eins hratt og mögulegt er til ykkar viðskiptavina okkar, en sú vinna mun alltaf taka tíma, þar sem hér er um stórar og miklar vörur og mikinn fjölda að ræða.
Þið fáið símtal frá okkur um leið og ykkar kerra er tilbúin til afhendingar.
Ég get ekki annað en beðið ykkur afsökunnar á þessari seinkun (við auglýstum að fyrstu kerrur yrðu afhentar í vikunni 1. - 5. júní). Þetta er leiðinlegt fyrir okkur sem höfum alltaf sett þjónustu í efsta sæti að lenda í þessu sem er algjörlega úr okkar höndum, við treystum á upplýsingar frá skipafélaginu og þetta átti ekki að vera í neinni hættu.
Ég bið ykkur jafnframt um að reyna að sýna okkur skilning og það er 100% loforð að um leið og kerrurnar eru klárar til afgreiðslu þá verður haft samband.
Símtöl, skilaboð eða tölvupóstar flýta því miður ekki afgreiðslunni og ég bið ykkur um að koma fram af virðingu við starfsfólkið okkar sem getur ekki töfrað fram kerrur eða flýtt afgreiðslunni á einn né neinn hátt.
Með vinsemd og virðingu
Magnús Lárusson - eigandi
ML@prosjoppan.is

