Jólagjafahandbókin 2026

 

 

 

Hér er að finna virkilega góðar gjafahugmyndir fyrir kylfingana í þínu lífi sem við teljum nokkuð öruggt að slái í gegn. Listinn er alls ekki tæmandi, við bjóðum uppá einstakt vöruúrval frá ellefu vörumerkjum sem eru hvert og eitt leiðandi á sínum sviðum.

Að því sögðu erum við virkilega spenntir að taka á móti ykkur í Síðumúla 33 í desember og veita ykkur góð ráð.  

Með því að smella á myndirnar opnast allar nánari upplýsingar um vörurnar og auðveldlega hægt að ganga frá kaupum um leið í vefverslun okkar.

 

 

Fyrir kylfinginn sem á allt

ClubsDock golfpokafestingarnar eru algjörlega málið í bílskúrinn, geymsluna eða þar sem golfpokinn er að taka óþarfa pláss þegar hægt er að smella honum uppá vegg.

Fullkominn gjöf fyrir kylfinginn sem á allt :)

 


Fyrir þau sem forðast "ströndina"

PING BunkR hefur algjörlega slegið í gegn og ekki að ástæðulausu. Þetta 64° fleygjárn hjálpar kylfingum á öllum getustigum að komast uppúr glompunum í fyrstu tilraun. Fæst hjá okkur bæði fyrir dömur (grafít) og herra (stál og grafít).

 

 

Fyrir alla sem elska að fara erlendis í golfferðir 

Motocaddy FlightSafe ferðacoverið er ótrúlega flott, stöðugt og veglegt 6 hjóla cover sem pakkast einstaklega vel saman þegar það er ekki í notkun og sparar þannig mikið pláss í geymslu.

 

  

 

Fyrir hana

Það er fátt meira inn í dag heldur en 7-tré, þetta PING G Le4 7-tré er ein allra vinsælasta kylfan hjá okkur og mjög líkleg til að slá í gegn undir jólatréinu.

 

 


Meira fyrir hana

Macade fatnaðurinn er bæði flottur og þæginlegur, ef planið er að gefa mjúkan pakka þá eru litlar líkur á því að fara í jólaköttinn ef mjúki pakkinn inniheldur vörur frá Macade.

 

 

Fyrir kylfinginn sem er alltaf að giska hvað er langt eftir 

Motocaddy PRO 5000 Laser Rangefinder er alvöru fjarlægðarmælir frá merki í fremstu röð. Snöggur, nákvæmur og einfaldur í notkun. Hér er á ferðinni fjarlægðarmælir sem stenst allar kröfur og meira til og á frábæru verði!


Fyrir hann

Við getum ekki annað en byrjað á Macade Links buxunum fyrir herrann. Þessar buxur eru að okkar mati hinar fullkomnu golfbuxur, flott snið, aðeins þykkara efni en áður frá Macade en sama frábæra teygjan. Margir flottir litir í boði. 

 

Meira fyrir hann

FJ Premiere Series eru líklega bestu golfskórnir sem við seljum, ef það er komið að nýjum golfskóm þá er ekki séns að klikka með pari af FJ Premiere Series skóm. Við erum með frábært úrval hjá okkur sem þú getur skoðað nánar með því að smella á myndina hér að neðan.


Fyrir þann herra sem að þú elskar mest

Hvað er betra en mjúkur pakki fyrir þann sem þú elskar mest? Okkar langvinsælasta herrapeysa er FJ 1/2 Zip Lined Vindpeysan. Gangi þér vel að finna betri mjúka gjöf en þessa :) Fæst í fimm litum.

 

 

Fyrir vandláta

Vessel er golfpokamerki í allra fremstu röð. Við erum algjörlega heillaðir af vörunum frá þeim sem eru tæknilega hannaðar og úr fyrsta flokks efnum. Golfpokarnir þeirra eru bestu golfpokarnir sem að við seljum en þar með er ekki öll sagan sögð, því frá Vessel erum við líka með ferðacover, bakpoka, töskur ofl. 


 

 

Skyldueign í golfhermana

Fyrir alla sem eru að spila og æfa í golfhermunum í vetur! Titleist Pro V1 RCT golfboltarnir eru þróaðir til að auka nákvæmni í golfhöggum í Trackman innandyra. Langflestir golfhermar landsins eru Trackman hermar. Eftir að hafa prufað sjálfir þá getum við ekki hugsað okkur að fara aftur án þeirra. 

 

 

 

Fyrir afrekskylfinginn

Þau sem eru duglegust að æfa eiga auðvitað skilið alvöru tösku fyrir æfingaboltana, Titleist boltataskan er stílhrein og vegleg og á ófáum óskalistum hjá afrekskylfingunum okkar. Við eigum einnig til Titleist ProV1 Practice bolta sem smellpassa með í töskuna, nánari upplýsingar hjá okkur í Síðumúla 33.

 

Fyrir þau svölu

Manors Greenskeeper Trouser buxurnar hafa heldur betur slegið í gegn á þessu ári og er það ekki skrítið! Virkilega töff buxur sem færa golfið upp um nokkur rokkstig :) Það má benda á það að dömur hafa líka verið að taka þessar buxur hjá okkur og fíla mjög vel.

 

Fyrir hressu og kátu kylfingana 

Blue Tees Player+ GPS hátalarinn er algjör snilldargræja sem fær fullt hús stiga frá okkur. Ef að þessi er með í golfferðinni þá ætti engum að leiðast, sama hvernig golfið gengur :)


Fyrir hann í golfferðina

Við göngum svo langt að segja að Macade Four-Way Stretch stuttbuxurnar séu skyldueign fyrir þá sem eru á leið erlendis eða fyrir nokkra daga á ári hér heima :) 

 


Fyrir afa og ömmu

Afi og amma eru svo nægjusöm og örugglega búin að vera með sama golfpokann í 10 ár!

Léttir, vatnsheldir og virkilega vandaðir golfpokar frá Motocaddy á flottu verði! Fást í fjórum litasamsetningum.

 

 

Fyrir mömmu

Mamma er límið í fjölskyldunni og hún á allt það besta skilið, er ekki kominn tími á að mamma fái rafmagnsgolfkerru? Motocaddy M1 DHC er stílhrein, sportleg, einföld í notkun og glæsileg í alla staði. 

 

 

Fyrir pabba

Pabbi er stundum að pirrast hvað teighöggin eru að styttast hjá honum og það hefur áhrif á alla á heimilinu! Nýju Titleist GT driverarnir eru algjörlega geggjaðir og hjálpa pabba að ná fyrri styrk á golfvellinum.

Gerum vel við pabba í ár, hann á það skilið.

 

 

Fyrir strákinn og jafnvel fyrir tengdasoninn líka

Er eitthvað sem er skemmtilegra á golfvellinum en að fá alvöru bakspuna? Titleist Vokey SM10 eru í pokanum hjá mörgum af bestu kylfingum heims og eins og flestir vita, algjörlega frábær fleygjárn.

Frábært úrval í boði hjá okkur frá 46° uppí 62° 

 

Fyrir herra sem vilja bara það besta og flottasta

FJ Premiere Series golfskórnir eru einstakir golfskór sem hægt er að fá í mörgum flottum útfærslum. Hjá okkur er magnað úrval af Premiere Series og þessir hér að neðan, Harris Tweed eru þeir allra flottustu.

 

 

 


 

Frá jólasveininum

Það er fátt betra en að spila golf í nýjum sokkum. Nú auðvitað má líka nota sokkana meira en bara til þess að spila golf eins og svo margir viðskiptavinir okkar vita.

 


 

Við vonum að Jólagjafahandbókin nýtist ykkur vel. 

Við viljum vekja athygli á því að allar jólagjafir frá okkur hafa veglegan skilafrest eða til 22.janúar 2027. 

Það eru skemmtilegir tímar framundan í desember og við tökum vel á móti ykkur öllum í Síðumúla 33. Við leggjum okkur alla fram við að þjónusta landsbyggðina eins vel og við mögulega getum og við erum alltaf til taks í síma, í gegnum tölvupóst eða á samfélagsmiðlunum. 

Fylgið okkur endilega á INSTAGRAM og FACEBOOK

 

Gleðilega hátíð!